Tilveran

Unglinga Barre og Pilates

Nánari upplýsingar

Lokað námskeið fyrir unglinga í Barre og Pilates

Námskeiðið er haldið í samstarfi við lífstílvörumerkið KENZEN. Allir þátttakendur fá Barre-kit frá Kenzen.

Á námskeiðinu mun Lana Kristinsdóttir, eigandi og stofnandi KENZEN, koma í heimsókn og segja frá stofnun fyrirtækisins, sem hún stofnaði aðeins 21 árs gömul.

Á unglingsaldri hætta margir í hefðbundnu tómstundastarfi. Því er mikilvægt að bjóða upp á hreyfingu sem er bæði skemmtileg og uppbyggileg og styrkir sjálfstraust – bæði líkamlega og andlega.

Barre og Pilates eru fjölbreytt æfingakerfi sem leggja áherslu á styrk, liðleika og góða líkamsbeitingu. Unnið er með létt lóð, bolta og teygjur í lifandi og krefjandi æfingum.

Tímarnir henta jafnt byrjendum sem þeim sem hafa stundað íþróttir áður og fara fram undir faglegri leiðsögn þjálfara.

Unglinga Barre og Pilates

36.900 kr.

Ekki til á lager

Barre og pilates unglingar 

Námskeiðið hefst 3. febrúar.
Um er að ræða tíu vikna námskeið sem fer fram tvisvar í viku.
Kennsla er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:00.
Hver kennslustund er 50 mínútur.
Aldur: 14-17 ára.
Hægt er að nýta frístundastyrk og hvatapeninga.

Verð: 36.900 kr.

Þjálfari: Svava Marín.

Deila á Facebook